Völva Tímaríms spáði hneykslismálum innan ríkisstjórnarinnar, vandræðum tengdum peningamálum hjá forsætis- fjármála- og innanríkisráðherra, fjöldamótmælum á Austurvelli, og því að Ólafur Ragnar Grímsson myndi bjóða sig fram að nýju vegna óvissu í stjórnmálunum í völvuspá sinni, sem birtist á Tímarími 30. desember á síðasta ári.
Það er athyglisvert að rifja upp orð völvunnar nú, þegar atburðarásin hefur verið hröð og æsispennandi.
Leader-sheep
„Eitthvað finnst mér verða rætt um leiðtogahæfileika forsætisráðherra á komandi ári. Það er skrítið en þetta kemur til mín á ensku. Ég hef alltaf haldið að Leadership væri eitt orð en þetta er leader-ship. Nei, fyrirgefðu mér, þetta er dálítið óskýrt. Núna sé ég þetta betur. Já, þetta er krossaumuð, innrömmuð mynd sem hangir uppi í þingeysku félagsheimili eða einhvers konar safni, sýnist mér. Þarna er saumað „Leader-sheep“. Já, þetta snýst ekki um leiðtoga í eiginlegum skilningi heldur um forystusauði, sem er jú mikið af í Þingeyjasýslum.“
Það er athyglisvert að enskan skuli leita svona á völvuna um síðustu áramót en pólitísk örlög Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar réðust einmitt í sjónvarpsviðtali þar sem hann svaraði spurningum á ensku – til að byrja með – og minnti fremur á þingeyskan forystusauð en forsætisráðherra lýðræðisríkis.
Spáð fyrir um Panama skjöl og Tortóla reikninga?
Völvan sá fyrir hneyksli í ríkisstjórninni og vandræði hjá þremur ráðherrum:
„Mér sýnist skæð flensa og langvinn herja á einhverja ráðherra ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra og fjármálaráðherra verða verst úti en einnig sýnist mér innanríkisráðherrann þjást. Við rannsókn kemur í ljós að ekki er um inflúensu að ræða heldur fremur sjaldgæfan sjúkdóm, sem í daglegu máli er kallaður afflúensa, sem á góðri íslensku útleggst sem auðlegðarsótt og lýsir sér í því að þeir sem sýkjast eru með öllu ófærir um að setja sig í spor venjulegs fólks, sem reiðir sig á launatekjur til að framfleyta sér. Sjúkdómurinn er stundum kenndur við hina hálshöggnu Maríu Antoinettu, Frakkadrottningu, sem stundum er sögð hafa stungið upp á því að fátæklingar skyldu borða köku úr því ekkert brauð var að fá. Þessi pest er því sem næst ólæknandi og er einstaklega óheppileg fyrir stjórnmálamenn.“
Katrín ekki í forsetaframboð heldur í forystu fyrir sameinaða vinstri menn
Völvan fjallaði um Pírata, uppgang þeirra og innri deilur, og vinstri menn og sá fyrir áhuga á samstarfi eða sameiningu á vinstri væng stjórnmálanna:
„Píratar verða áfram langstærsti flokkur landsins frameftir árinu 2016. Eitthvað dalar fylgið þegar líður á árið og mér sýnist það aðallega vera vegna innbyrðis deilna Pírata. Þar kann að hafa áhrif að virkum félögum fjölgar mjög eftir því sem líður á árið og í þeim hópi eru ýmsir fyrrverandi flokksmenn úr öðrum flokkum sem á árinu 2016 átta sig skyndilega á því að í hjarta sínu hafa þeir alltaf verið Píratar.
Ég sé fyrir mér samstarf eða jafnvel sameiningu á vinstri væng stjórnmálanna. Þar verða konur í forystu og ekki kæmi mér á óvart þó að Katrín Jakobsdóttir verði forsætisráðherraefni sameiginlegs framboðs vinstri manna í anda Reykjavíkurlistans fyrir kosningarnar 2017. Hún fer ekki í forsetaframboð.“
Einhver mál með Landsbankann og Íslandsbanka
Völvan sér fyrir sér mótmæli við Alþingi út af bönkum:
„Þetta verður skrítið ár. Uppgjörið við kröfuhafana tefst eitthvað og mér sýnist komið fram á mitt ár áður en frá því verður endanlega gengið. Samt sýnist mér eitthvað gerast með annað hvort Landsbankann eða Íslandsbanka, eða jafnvel báða, þannig að þeir verði seldir til einkaaðila. Það verða heitar umræður um það í samfélaginu og á Alþingi og ég sé ekki betur en að þúsundir eða jafnvel tugþúsundir skori á Forseta Íslands að koma í veg fyrir söluna. Það verða mótmælastöður við Alþingi, stjórnarráðið og fjöldi manns mætir við Bessastaði.“
Ólafur Ragnar fer fram aftur
Svo var það stóra spurningin um síðustu áramót. Færi Ólafur Ragnar fram aftur?
„Hann bíður sig aftur fram. Ég sé ekki alveg hvort það verður með afdráttarlausum hætti í nýársávarpinu en þó finnst mér það frekar. Honum finnst of mikil óvissa í stjórnmálunum, stjórnarskrármálum og ESB málum til að hverfa úr embætti núna. Það verða nokkrir mótframbjóðendur og sumir þeirra mjög frambærilegir en ég sé ekki annað en að Ólafur vinni afgerandi sigur. Þetta verður hans síðasta kjörtímabil.“
Svo mörg voru þau orð hjá völvu Tímaríms um síðustu áramót.